Spesía er skráð vörumerki desembermánaðar

29. desember 2025Vörumerki
„Meginmarkmið okkar er að búa til app og vef sem gerir það jafnauðvelt að fjárfesta í erlendum eignasöfnum og það er í dag að millifæra pening í netbanka,“ segir Georg Lúðvíksson, forstjóri og einn stofnenda fjártæknifyrirtækisins Spesíu. Orðmerkið Spesía er skráð vörumerki desembermánaðar hjá Hugverkastofunni.
Það má segja að Georg sé raðfrumkvöðull enda segist hann hafa gert það að sínu ævistarfi að hjálpa fólki með fjármál og fjárfestingar og hann stýrði m.a. uppbyggingu fjártæknifyrirtækisins Meniga. Meðal meðstofnenda Spesíu er líka Bergur Ebbi, lögfræðingur, uppistandari og hugmyndasmiður með meiru. Við hittum Georg og Berg Ebba til að spjalla um fyrirtækið, markmið þess og plön í tilefni valsins.

Gott að vera í Sjávarklasanum
Skrifstofur Spesíu eru í Sjávarklasanum úti á Granda og þar er fyrirtækið í sambýli með fjölmörgum öðrum sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum með mismikil tengsl við sjávarútveg. Einn kosturinn við slíkt samfélag nýsköpunarfyrirtækja er spjallið við kaffivélina og það er því við hæfi að hefja viðtal við þá félaga á kaffistofunni. Þó segja megi að þeir séu fulltrúar hins nýja hugverkadrifna íslenska atvinnulífs, eða „einhvers annars“ eins og það er stundum kallað, eru tengslin við klassískari atvinnustarfsemi sterk í klasanum. Fyrir utan er t.d. verið að landa þorski úr Helgu Maríu RE3 og í húsinu, sem áður hýsti fiskvinnslu, má enn nema léttan keim af fiski og sjó, sem hlýtur að teljast við hæfi í Sjávarklasanum. Það liggur beint við að spyrja hvernig þeim líki samfélagið í húsinu.
„Það er bara frábært að vera hérna,“ segir Bergur Ebbi. „Hér er gott og frjótt samfélag og þó við tilheyrum auðvitað þeim hópi fyrirtækja hér sem ekki er með bein tengsl við sjávarútveginn þá er þetta mjög góður staður fyrir sprotafyrirtæki, fínar skrifstofur á góðu verði, góð staðsetning og aðgengi og auðvitað úrvals kaffi.“
Vísitölusjóðir með betri ávöxtun
Látum þetta nægja af rómantík, ræðum bisness og fjármál. Hvað er nýtt við Spesíu og hvert er planið?
„Hér er enn bæði dýrt og flókið að fjárfesta í sjóðum og því viljum við breyta“
Georg verður til svara: „Við fórum af stað með fyrirtækið í byrjun síðasta árs með þá hugsjón að breyta því hvernig Íslendingar fjárfesta,“ segir hann. „Það má segja að vísitölusjóðir hafi sigrað heiminn þegar kemur að fjárfestingum, enda hafa rannsóknir sýnt að slíkir sjóðir, þar sem eru engir sjóðsstjórar og sjálfvirk reiknirit sjá um fjárfestingar, ná yfirleitt betri ávöxtun en sjóðir þar sem fjárfestingastjórar stýra fjárfestingum í einstökum fyrirtækjum. Þessi þróun hefur hins vegar ekki enn náð til Íslands. Hér er enn bæði dýrt og flókið að fjárfesta í sjóðum og því viljum við breyta.“
Til samanburðar bendir Georg á Indó sem hafi kennt Íslendingum að það sé ekki náttúrulögmál að gengisálag sé mun hærra hér en í nágrannalöndunum. Markmiðið hjá Spesíu sé kannski að gera sambærilega hluti í sambandi við erlendar fjárfestingar.
„Hér geymir almenningur gjarnan sparnað á almennum sparnaðarreikningum í bönkum. Það getur verið ágætt til skemmri tíma en til lengri tíma litið þá ná slíkir reikningar yfirleitt bara rétt að halda í verðbólguna og verðbréf hafa alltaf gefið betri ávöxtun. Við viljum gefa fólki tækifæri til að njóta slíkrar ávöxtunar án þess að þurfa að nota flóknar og dýrar lausnir.“
Fjárfestingar í verðbréfum eru þó ekki með öllu gallalausar og Georg segir að auðvitað sé stærsti ókosturinn sveiflur á verði þeirra, sem til skemmri tíma geti verið fjárfestum erfiðar. Fjárfestingasjóðum er ætlað að dempa sveiflur sem verða á verði einstakra félaga eða eignasafna og Spesía ætlar ekki bara að búa til og reka góðan og notendavænan vef og app heldur hyggst einnig reka nokkra mismunandi sjóði sem verða með mismikla áhættu sem viðskiptavinir geta valið á milli eftir því hvað hentar þeim.

Spesía var íslensk mynt á 19. öld
En að vörumerkinu sem slíku og þessu nafni, Spesía, hvaðan kemur það?
Bergur Ebbi segir að hugmyndin að nafninu hafi komið frá Kristrúnu, konu Georgs. „Þetta er skemmtilegt nafn sem bæði tengist sögunni, því myntin sem notuð var á 19. öld á Íslandi hét spesía og svo hefur það líka yfirbragð framtíðarinnar og er alþjóðlegt. Orðið er til á Norðurlandamálunum og þýðir mynt eða afsteypa. Einhverjir hafa líka tengt orðið við rómversku gyðjuna Spes, sem var einmitt algengt viðfang á myntum og svo eru einhverjir sem tengja orðið við smákökur og enn aðrir við ítölsku borgina La Spezia og fótboltaliðið sem er samnefnt henni,“ segir hann kankvíslega. Þrátt fyrir að orðið sé þekkt segir hann að samkvæmt könnun þeirra sé orðið ekki notað af öðrum fyrir fjármálaþjónustu erlendis.
Traust þarf að vera til staðar
En vörumerki er auðvitað miklu meira en bara nafn eða lógó sem skellt er á vöru eftir á, eins og Bergur Ebbi segir. „Vörumerkið í víðum skilningi er heildaráhrifin sem fólk verður fyrir við að eiga viðskipti eða tengjast fyrirtækinu á annan hátt. Það er viss áskorun að byggja upp nýtt vörumerki í fjármálageiranum. Þetta er íhaldssamur markaður, eðlilega, því fyrirtæki eru jafnvel að höndla með aleigu fólks og traust þarf að vera til staðar. Á sama tíma þarf nýtt fyrirtæki eins og okkar líka að koma fram með nýja hugsun og vera ágengt og öðruvísi. Við þurfum að koma fram með herópi en líka að starfa innan ramma okkar geira. Þetta er vissulega áskorun og við þurfum að gera þetta á réttan hátt því við fáum bara eina atrennu. Við þurfum að slá góðan tón strax í byrjun og vöndum okkur þess vegna í allri vörumerkjavinnu og við hönnun útlits og markaðsefnis.“ Hann segir að vörumerkið sé ekki bara á ábyrgð markaðsstjóra heldur sé þetta spurning um forgangsröðun hjá öllum starfsmönnum. „Það eru allir með hausinn í þessu!“
Stóri lærdómurinn hvað sala og markaðsmál skipta ótrúlega miklu máli
Georg bætir við að hann hafi lært mjög mikið um mikilvægi vörumerkja og markaðsmála á sínum ferli og hann hafi gengið í gegnum dæmigerða lærdómskúrfu frumkvöðuls hvað það varðar. „Kannski var það stóri lærdómurinn hjá mér hjá Meniga hvað sala og markaðsmál skipta ótrúlega miklu máli. Ég pældi ekki mikið í því á sínum tíma og ég held að það sé dæmigert fyrir frumkvöðla sem eru að vinna að sinni fyrstu vöru eða þjónustu að setja allan fókusinn á vöruþróun, en gleyma svolítið að það þurfi líka að selja vöruna. Ég gef þessu miklu meiri gaum og tíma núna og pælingar um vörumerkið og markaðsmál hafa verið samofin allri starfsemi Spesíu allt frá byrjun.“
Langar að tala um fjármál á nýjan hátt
Má þá búast við stórri auglýsingaherferð eða hvernig ætlið þið að kynna þjónustuna?
Meginmarkmiðið þar segir Bergur Ebbi snúast um að skapa traust með því að miðla þekkingu og vera algjörlega gagnsæ um starfsemina. „Okkur langar að tala um fjármál á nýjan hátt, fræða fólk og segja sögur og nýta samtal á öllum þeim fjölbreyttu miðlum sem nú standa til boða,“ segir Bergur Ebbi. „Það er hægt að bæta samskiptin í fjármálaumhverfinu umtalsvert og við ætlum okkur að verða nýtt og ferskt afl sem kemur inn með nýja nálgun og erum að vinna myndheim og markaðsskilaboð til að endurspegla það.“
Stefnt á að opna fyrir viðskipti í snemma á næsta ári
En hvað er framundan, hvenær getur íslenskur almenningur átt von á því að fara að geta fjárfest í erlendum verðbréfum í íslensku appi?
„Fyrsta varan okkar er að mestu tilbúin á markað og við bíðum bara eftir leyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Þannig að við stefnum á að opna fyrir viðskipti snemma á næsta ári,“ segir Georg og Bergur Ebbi bætir við að ætlunin sé að byrja á einni, tiltölulega einfaldri lausn þar sem fólk geti valið þrjár mismunandi fjárfestingarleiðir með mismikilli áhættu, eftir því hvað henti. Til að byrja með muni fyrirtækið einblína á íslenska markaðinn sem Georg segir alls ekki lítinn. Hann segist hafa góða reynslu af því frá Meniga að byggja upp og þróa kerfi hér á landi og nota Ísland sem nokkurs konar tilraunastofu, áður en ráðist sé í útrás. „Ef niðurstaðan verður sú að kerfið eigi erindi á Íslandi, er engin ástæða til að ætla annað en að það virki annars staðar líka.“
Þá er kaffibollinn tómur og önnum kafnir frumkvöðlarnir þurfa að rjúka á annan fund. Að skilnaði segjast þeir Georg og Bergur Ebbi þakklátir fyrir ráðgjöf sem þeir fengu hjá Hugverkastofunni varðandi skráningu á vörumerkinu sem hafi nýst þeim vel og þeir séu líka þakklátir fyrir að Spesía hafi verið valið skráð vörumerki mánaðarins, enda sé þetta fyrsta markaðsviðurkenning sem fyrirtækið hljóti. Við þökkum sömuleiðis fyrir gott og fróðlegt viðtal og hlökkum til að fylgjast með þessum sprota vaxa og blómstra.
Vörumerki V0138973 skráð 15. nóvember
Sótt var um skráningu orðmerkisins Spesía í júní 2025 það var birt til skráningar 15. september og skráð 15. nóvember síðastliðinn í flokkum 9, 35, 36 og 42 m.a. fyrir tölvuhugbúnað, skrifstofustarfsemi, fjárfestingar, fjármálaráðgjöf, fjárvörslu og hugbúnaðarhönnun.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.
