Alþjóðlegt vörumerkjaferli
Á hverju ári leggja íslenskir aðilar inn fjölda vörumerkjaumsókna erlendis. Ein leið til þess er að sækja um hjá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO).
Með einni alþjóðlegri umsókn er hægt að velja úr yfir 120 löndum og bæta löndum við síðar ef óskað er.
Alþjóðlega umsóknarkerfið er einnig fyrir félagamerki og ábyrgðar- og gæðamerki. Hugverkastofan hefur milligöngu um alþjóðlegar umsóknir.
Ætti ég að sækja um?
Áður en alþjóðlegt vörumerkjaferli hefst er mikilvægt að kanna hvort eins eða lík vörumerki á sama eða svipuðu viðskiptasviði séu þegar skráð í þeim ríkjum sem sækja á um vernd í. Slík merki geta staðið í vegi fyrir skráningu merkis. Hægt er að leita að merkjum í alþjóðlegum gagnagrunnum, t.d. WIPO Madrid Monitor og EUIPO TM View eða skoða leitarvélar hugverkastofa viðkomandi landa.
Hvenær er hægt að sækja um?
Nauðsynlegt er að sækja fyrst um á Íslandi áður en farið er í alþjóðlegt ferli. Alþjóðleg umsókn þarf að byggja á innlendri skráningu eða umsókn en merkið þarf ekki að hafa fengist skráð áður en ferlið hefst. Vörumerkið þarf að vera nákvæmlega eins og í innlendu skráningunni/umsókninni og má ekki ná til víðtækari lista vöru eða þjónustu. Hægt er að byggja á fleiri en einni umsókn/skráningu ef merkið er nákvæmlega eins en vöru- eða þjónustulisti ólíkur.
Forgangsréttur
Með umsókn skapast svokallaður forgangsréttur sem þýðir að í 6 mánuði frá umsóknardegi er hægt að leggja inn alþjóðlega umsókn og fá skráðan sama umsóknardag og á Íslandi. Umsóknin fær því forgang framyfir þau merki sem eru eins eða lík og koma fram í millitíðinni. Þar af leiðandi tapast enginn tími við að kanna með fyrstu viðbrögð við íslensku umsókninni.
Hvernig sæki ég um?
Mælt er með því að sækja um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi WIPO sem kallast Madrid e-Filing. Athuga þarf vel að öll formskilyrði séu uppfyllt.
Kostnaður
Kostnað vegna alþjóðlegrar umsóknar má áætla með gjaldareiknivél WIPO. Gjaldið byggir m.a. á fjölda landa sem valin eru ásamt fjölda flokka í umsókn. Auk umsóknargjalda til WIPO greiðist umsýslugjald til Hugverkastofunnar samkvæmt gjaldskrá.
Formleg yfirferð
Þegar umsýslugjald hefur verið greitt fer Hugverkastofan yfir umsókn með tilliti til umsóknar/skráningar sem byggt er á. Ef athugasemdir eru gerðar fær umsækjandi tilkynningu og frest til lagfæringa. Því næst tekur WIPO við yfirferð umsóknar og fer m.a. yfir tilgreiningar í vöru- og þjónustulista. Komi til athugasemda gefur WIPO umsækjanda frest til þess að leysa úr þeim með milligöngu Hugverkastofunnar.
Hvað gerist þegar ég hef sótt um
Þegar formskilyrði eru uppfyllt og umsóknin hefur fengið alþjóðlegt númer hjá WIPO er hún áframsend til hugverkastofa tilnefndra landa sem taka sjálfstæða ákvörðun um skráningarhæfi merkis. Komi til synjunar er umsækjanda tilkynnt um það og veitt færi á að svara. Gæta verður vel að öllum frestum í ferlinu svo umsóknin falli ekki úr gildi.
Alþjóðleg skráning er háð innlendu grunnskráningunni sem hægt er að byggja á umsókn fyrstu 5 árin. Þetta þýðir að ef grunnskráningin fellur úr gildi innan þess tíma hlýtur alþjóðlega skráningin sjálfkrafa sömu örlög.
Tilnefning fleiri landa
Ef eigandi alþjóðlegrar skráningar óskar eftir að bæta við fleiri löndum seinna má gera það rafrænt á vef WIPO. WIPO áframsendir beiðni til tilnefndra landa sem taka ákvörðun um skráningarhæfi merkis. Kostnað má reikna út í gjaldareiknivél WIPO
Aðrar tilkynningar
Ef breytingar verða á vörumerki þarf að tilkynna þær til WIPO. Þar má nefna sem dæmi eigendaskipti, takmörkun á vöru og þjónustu, tilnefning umboðsmanns o.s.frv. Hugverkastofan tekur við flestum gerðum eyðublaða og áframsendir til WIPO en bendir jafnframt á að mörg þessara eyðublaða er hægt að senda rafrænt til WIPO.
Hvernig fylgist ég með skráningunni minni?
Í gagnagrunninum Madrid Monitor má fylgjast með meðferð umsóknar og síðar skráningar. Þar má sjá svör frá þeim löndum sem hafa umsóknina til rannsóknar og innsend erindi sem tengjast vörumerkinu. Fáist merkið skráð í einhverjum þeirra landa sem tilnefnd eru gildir skráningin í 10 ár og hægt er að endurnýja skráninguna hjá WIPO.
Í hnotskurn:
Hægt að sækja um í yfir 120 löndum
með milligöngu Hugverkastofunnar
Alltaf hægt að sækja um
ef íslensk umsókn/skráning er til staðar
Vernd frá fyrsta umsóknardegi
ef sótt er um innan 6 mánaða
Merki þarf að endurnýja
hjá WIPO á 10 ára fresti