Útgáfa » Fréttir

Fimm fyrirtæki keppa um Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 10. apríl í beinu streymi

Fimm fyrirtæki keppa um Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 10. apríl í beinu streymi

03. apríl 2025

Fimm norræn fyrirtæki eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna sem afhent verða í fyrsta skipti á á ráðstefnu dönsku hugverkastofunnar í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 10. apríl, kl. 12 að íslenskum tíma. Hugverkastofan hefur tilnefnt Carbfix til verðlaunanna fyrir Íslands hönd.

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna (Nordic Innovation Award) eru ný verðlaun sem hugverkastofur Norðurlandanna standa að í sameiningu til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaverndar.

Fyrirtækin fimm sem eru tilnefnd til verðlaunannar árið 2025 eru:

Ísland: Carbfix

Carbfix hefur þróað byltingarkennda og einkaleyfisvarða aðferð til að binda koltvísýring í bergi til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifum

Meira um tilnefningu Carbfix til verðlaunanna.

Danmörk: SiteCover

SiteCover hefur hefur þróað einkaleyfisvarðar yfirbyggingar fyrir byggingarstaði til að hægt sé að vinna við þurrar aðstæður óháð veðri. Uppistöður bygginganna virka einnig sem uppistöður fyrir hlaupaketti.

Finnland: Origin by Ocean

Origin by Ocean hefur þróað einkaleyfisvarðar aðferðir til að vinna ýmis efni úr brúnþörungum, m.a. fyrir snyrti- og matvælaiðnað.

Svíþjóð: GreenIron

GreenIron hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að framleiða járn og aðra málma án þess að losa gróðurhúsalofttegundir.

Noregur: Cartesian

Cartesian hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að geyma og miðla varmaorku í byggingum og þannig spara orku og orkukostnað.

Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, mun velja eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin. Við mat á tilnefndum fyrirtækjum verður horft til fimm þátta:

  • Nýsköpun - Nýsköpunin verður að fela í sér nýja og frumlega nálgun, vísindi eða tækni, einstakar aðferðir eða skapandi lausnir við úrlausn vandamála.
  • Sjálfbærni - Nýsköpunin þarf að stuðla að aukinni sjálfbærni og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SDG).
  • Viðskiptalegur lífvænleiki og  vaxtarmöguleikar - Nýsköpunin þarf að skapa grundvöll fyrir raunhæfa og skalanlega viðskiptahugmynd sem líklegt er að skili arði til framtíðar.
  • Mælanlegur árangur – Sýna þarf fram á að nýsköpunin hafi skilað mælanlegum árangri, hvort sem það er í formi sölutekna, markaðssóknar, viðskiptaáætlana eða nýrrar og viðurkenndrar aðferðafræði.
  • Skráð hugverk – Nýsköpunin þarf að vera vernduð með skráðum hugverkaréttindum (einkaleyfi, vörumerki eða hönnun) á viðeigandi mörkuðum.

Markmið verðlaunanna er að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafa framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.

Hugverkastofan hefur ákveðið, í samráði við samstarfsaðila um Nýsköpunarverðlaun Íslands: Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, að það fyrirtæki sem hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands hverju sinni verði tilnefnt fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna.