Útgáfa » Fréttir
37% þjóðarframleiðslu Íslands frá hugverkadrifnum atvinnugreinum
11. október 2022
Hugverkadrifnar atvinnugreinar (IPR-intensive industries) standa undir 37,2% þjóðarframleiðslu Íslands og 29,7% starfa samkvæmt nýrri skýrslu um hugverkadrifnar atvinnugreinar í Evrópu sem kom út í dag. Til samanburðar standa þessar greinar að meðaltali undir ríflega 47% af þjóðarframleiðslu landa Evrópusambandsins, EFTA og Bretlands og 29,7% starfa.
Skýrslan er unnin af Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) og Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) og tekur til áranna 2017-2019. Í henni kemur m.a. fram að fyrirtæki, sem starfa í þeim geirum atvinnulífsins sem leggja áherslu á vernd hugverkaréttinda, greiða að meðaltali 41% hærri laun en önnur fyrirtæki. Sé litið sérstaklega til þeirra geira þar sem einkaleyfaskráningar eru algengar, eru laun að meðaltali 65% hærri en í öðrum geirum. Þá kemur fram að hugverkadrifnar atvinnugreinar standi fyrir 80% af útflutningi Evrópusambandsins og um 75% af öllum viðskiptum innan sambandsins.
Sé litið til samanburðar á milli ára hefur mikilvægi hugverkadrifinna atvinnugreina almennt aukist. Árin 2017-2019 er talið að þessar greinar hafi staðið undir 29,7% starfa í Evrópu en 28,9% árin 2014-2016.
Hugverkadrifin atvinnugrein er í skýrslunni skilgreind sem atvinnugrein þar sem fjöldi skráðra hugverkaréttinda á hvern starfsmann er yfir meðaltali, hvort sem það eru skráð einkaleyfi, vörumerki, hönnun, höfundarréttur eða afurðaheiti.